Þorsteinn Pálsson skrifar: Á Ísland heima í tollabandalagi í tollastríði?

Sú ákvörðun ríkisstjórnar Bandaríkjanna að hverfa frá fríverslunarstefnu og hefja tollastríð við umheiminn hefur kollvarpað öryggi og fyrirsjáanleika í heimsviðskiptum. Óvissan er því meiri sem þjóðir eru minni og háðari utanríkisviðskiptum. Í því ljósi hefur Ísland ríkari ástæðu en flest önnur byggð ból til að brjóta þessa breyttu stöðu til mergjar. Fram til þessa hefur Lesa meira

„Verum hugrökk og gerum það sem við getum til þess að fá staðreyndirnar á borðið“

„Þetta er þjóðaratkvæðagreiðsla, ekki um aðild heldur um það að klára samninginn, hefja að nýju samningaviðræður við Evrópusambandið,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst. Í ítarlegu viðtali í nýjasta hlaðvarpsþætti Gímaldsins svarar Þorgerður Katrín fjölmörgum spurningum um málið, meðal annars: Hvaða ferill fer í gang ef þjóðin…

Björn Jón skrifar: Kennum meiri sögu!

Við félagarnir skelltum okkur í Smárabíó síðastliðið mánudagskvöld til að sjá stórmyndina Tróju frá árinu 2004 í leikstjórn Þjóðverjans Wolfgang Petersen með Brad Pitt í hlutverki Akkillesar, Peter O‘Toole sem Príamus konung og þá Eric Bana og Orlondo Bloom í hlutverkum sona hans, Hektors og Parísar. Það er vel til fundið hjá kvikmyndahúsunum að taka Lesa meira

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Auglýst eftir gleði

Pistlahöfundur hefur ákaflega gaman af kosningabaráttu og kosningum. Hún gerði einu sinni þau mistök að vera í útlöndum þegar sveitarstjórnarkosningar voru. Þau mistök verða aldrei endurtekin. Hún hafði verið utan við sig og ekki munað eftir kjördegi þegar hún pantaði utanlandsferðina. Hún upplifði því ekki nema úr fjarlægð fögnuðinn sem braust út þegar Besti flokkurinn Lesa meira

Krónan léleg til að varðveita verðmæti og verðtrygging býr til sjálfvirkt gangvirki til hækkunar verðbólgu

Íslenska krónan hefur reynst lélegt tæki til að varðveita verðmæti og víðtæk notkun verðtryggingar hefur búið til sjálfvirkt gangvirki til hækkunar verðbólgu, þetta er meðal þessa sem kemur fram í nýrri skýrslu Evrópustrauma sem unnin var fyrir Félag atvinnurekenda og Íslensk-evrópska verslunarráðið. Skýrslunni er ætlað að vera upplýsandi innlegg um kosti og galla mögulegrar aðildar Lesa meira

Orðið á götunni: Atvinnulífið vælir við GRÁTMÚRINN í Borgartúni 35

Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu héldu ráðstefnu í gær þar sem meginefnið var að vorkenna bönkunum vegna þess að stjórnvöld hafa lagt bankaskatt á bankana síðustu tíu árin, lengst af undir vinstri stjórn Katrínar Jakobsdóttur og Bjarna Benediktssonar (sem nú er kominn yfir borðið og byrjaður að væla og skæla fyrir hönd atvinnulífsins með fimm milljónir Lesa meira

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: ETS hvað

Las fyrir skemmstu bókina Um tímann og vatnið eftir Andra Snæ Magnason. Andri Snær er lipur penni og bókin bæði fróðleg og skemmtileg. Á milli þess sem hann rifjar upp minningar úr eigin lífi, sögur af fjölskyldunni og bandarískum frænda sínum, sem hafði gert það að ævistarfi sínu að bjarga krókódílum í útrýmingarhættu, viðrar hann Lesa meira

Vilhelm Jónsson skrifar: Landið er stjórnlaust — og úrræðaleysið algert

Alþingi Íslands er oft kallað hjarta lýðveldisins. Það er falleg samlíking — en hún vekur líka ákveðnar áhyggjur. Því ekkert heilbrigt hjarta tekur sér þriggja mánaða hlé þegar líkaminn stendur frammi fyrir alvarlegum vanda. Enginn myndi sætta sig við að slökkviliðið færi í sumarfrí á meðan eldar loguðu um samfélagið. Enginn myndi samþykkja að Landspítalinn Lesa meira

Sigmundur Ernir skrifar: Hvort er gáfulegra að vita meira en minna?

Forvitra afturhaldið á Íslandi, sem hefur meðfædda andúð á álfunni sinni og frábiður sér samvinnu við hana, býr yfir þeirri náðargáfu að geta séð hvernig framtíðin muni leika landsmenn. Fyrir vikið reynist því létt verk og löðurmannlegt að semja við aðrar þjóðir án þess að setjast með þeim við borðið. Þetta liggi allt fyrir! Það Lesa meira

Sigurður Hólmar Jóhannesson skrifar: Tíminn bíður ekki eftir barninu

Við mælum tíma í sekúndum, mínútum og árum. En fyrir börn er tíminn eitthvað allt annað. Eitt ár í lífi fullorðins einstaklings getur liðið hratt og horfið inn í hversdagsleikann Eitt ár í lífi barns getur hins vegar mótað heila framtíð Þegar barn er að þroskast skiptir hver mánuður máli. Stundum hver vika. Þess vegna Lesa meira

Óttar Guðmundsson skrifar: ESB á Þingvöllum

Fundur var haldinn á Þingvöllum við Öxará um miðja tíundu öld til að ræða samskipti Íslands við útlönd. Nokkur Evrópulönd höfðu bundist samtökum um sameiginlegt myntsvæði og viðskiptafrelsi og flutning á vinnuafli milli landa. Innan þessa ríkjasambands var víðast hvar velsæld og friður. Ísland var utan þessa bandalags enda einkenndist efnahagsstjórnin af mikilli óreiðu, hæstu Lesa meira

Þorsteinn Pálsson skrifar: Daði Már sækir vatnið yfir bæjarlækinn

Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra birti í síðustu viku mikilvæga skýrslu erlendra óháðra hagfræðinga um krónuna og evruna. Hlutverk þeirra var ekki að segja Íslendingum hvað þeim er fyrir bestu. Tilgangurinn var að fá faglegt óháð álit á helstu álitaefnum þegar við tökum afstöðu um tvo kosti. Það mikilvægasta í mati erlendu hagfræðinganna er þetta tvennt: Lesa meira

Ísfélagið missir vigtunarleyfi í hálft ár – Fiskistofa telur að átt hafi verið við vigtina

Fiskistofa hefur afturkallað vigtunarleyfi Ísfélagsins á Þórshöfn í hálft ár frá og með 1. júní vegna rofs á innsigli á hugbúnaði vigtar, segir í ákvörðun Fiskistofu að „átt hafi verið við“ vigtina og framið hafi verið brot sem „leiði bersýnilega til að afli yrði ranglega skráður“. Ísfélagið hafnar því alfarið að átt hafi verið við Lesa meira

Albert Jónsson: Ísland eina ríkið til að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um viðræður – aldrei gerst áður

Það er ekkert einfalt við inngöngu í Evrópusambandið og upptöku evru. Fleiri en ein hlið er á málinu og slæmt að kjósendur skuli ekki fá nægar upplýsingar, nú þegar það er á þeirra herðum að ákveða næstu skref. Albert Jónsson, fyrrverandi sendiherra og sérfræðingur í alþjóðamálum, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar. Hér er Lesa meira

Áslaug Arna hætt: „Í dag verða því kaflaskil í mínu lífi“

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir er hætt sem þingmaður Sjálfstæðisflokksins, þetta kom fram í ræðu hennar á Alþingi núna í morgun. Hún hefur setið sem þingmaður fyrir flokkinn í tíu ár eða frá árinu 2016. Áslaug Arna var nálægt því að verða formaður Sjálfstæðisflokksins fyrir rúmu ári en laut í lægra haldi fyrir Guðrúnu Hafsteinsdóttur, í kjölfarið Lesa meira

Fjármálakerfið traust og fasteignaverð hefur lækkað

Fjármálakerfið á Íslandi er traust og vel í stakk búið til að mæta ófyrirséðum áföllum, húsnæðisverð hefur lækkað að raunvirði og áhætta í rekstri fjármálainnviða hefur aukist. Þetta er á meðal þess sem kemur fram í yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Seðlabankans. Yfirlýsingin er eftirfarandi: „Fjármálakerfið hér á landi er traust og vel í stakk búið til að Lesa meira

Thomas Möller skrifar: Við gætum fengið góðan samning

Alþingi samþykkti í síðustu viku að þjóðin fengi að ákveða næsta skef varðandi aðild Íslands að Evrópusambandinu en 29. ágúst verður haldin þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna við ESB. Þetta verður vonandi bara fyrsta skrefið í vegferð að bættri efnahagslegri velferð Íslands, auknum stöðugleika og sterkari stöðu Íslands á alþjóðavettvangi. Ísland er þegar með aðild að Lesa meira

Sigurður Hólmar Jóhannesson skrifar: Vonin býr á rannsóknarstofunum

Nýlega fékk ég ásamt eiginkonu minni, einstakt tækifæri til að heimsækja rannsóknarstofur Human Genomics við Leiden háskólann í Hollandi. Þar fengum við að sjá með eigin augum það mikilvæga starf sem unnið er við rannsóknir á Alternating Hemiplegia of Childhood (AHC), einum flóknasta taugasjúkdómi heims. Heimsóknin var áhrifamikil á marga vegu. Við vorum fyrstu foreldrarnir Lesa meira

Orðið á götunni: Neikvæðni og útúrsnúningar einkenna nei-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, og Sigríður Andersen, þingmaður Miðflokksins, voru gestir Kastljóss eftir að þjóðaratkvæðagreiðslan hafði verið samþykkt í þinginu með 34 atkvæðum gegn átta en 14 þingmenn Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar sátu hjá. Þorgerður Katrín var að vonum ánægð og brosandi eftir að þessi úrslit lágu fyrir með svo afgerandi hætti. Fýlan lak hins vegar …

Hannes Örn Blandon skrifar: Greinin sem fékkst ekki birt á Vísi

Aðstandendum Vísis stendur greinilega ekki á sama hvaða skoðanir eigi heima í þeirra ágæta miðli og ákváðu að birta ekki þennan pistil af einhverjum ástæðum. Ég vil samt trúa því að við búum enn við rit-, mál-, trú- og skoðunarfrelsi. Gæti samt verið að þau málefni séu í uppnámi hér á landi sem annars staðar. Lesa meira

Sigmundur Ernir skrifar: Miðflokkurinn er ekki stjórntækur

Ein athyglisverðasta niðurstaða nýafstaðinna sveitarstjórnarkosninga er er sú að Miðflokknum er ekki treyst til að taka þátt í meirihlutasamstarfi í bæjarfélögum landsins. Af sextán þéttbýlustu stöðunum á eyjunni fögru fær Miðflokkurinn aðeins inni í einu tilviki, í Reykjanesbæ, þar sem Sjálfstæðisflokkurinn sér aumur á afturhaldinu og hleypir því að kjötkötlunum. Í hinum fimmtán sveitarfélögunum…

Guðmundur Einarsson skrifar: Miðflokkur: Gul viðvörun

„Það er líklega betra að hafa hann inni í tjaldinu og mígandi út, frekar en utan við tjaldið og mígandi inn,“ sagði Lyndon B Johnson, Bandaríkjaforseti, árið 1963 þegar hann ákvað að halda J. Edgar Hoover, forstjóra Alríkislögreglunnar (FBI) áfram í embætti. Forstjórinn var alræmdur fantur. Hann misnotaði aðstöðu sína, braut lögin sem hann átti Lesa meira

Albert Jónsson: Trump er ekki bara tilviljun – hann er afurð raunverulegra aðstæðna

Trump passar sig á að allir sem hann velur til starfa hlýði honum. Svo var ekki á fyrra kjörtímabili hans. Bandaríkin hafa lengi verið að breytast og stórir hópar í miðríkjunum og suðrinu hafa einfaldlega orðið út undan. Það er þetta fólk sem kaus Trump. Hann hefur svo hreinlega beygt allt bandaríska stjórnkerfið undir sig. Lesa meira

Óttar Guðmundsson skrifar: Alltaf Framari

Margar sárar æskuminningar tengjast knattspyrnuæfingum hjá Fram fyrir neðan gamla Sjómannaskólann. Ég var svo lélegur í fótbolta að ég lenti alltaf í ruslflokknum sem enginn vildi hafa í liði með sér. Sjálfan langaði mig til að vera hluti af glæstu bláklæddu strákaliði sem stillti sér upp með bikar á mynd í Mogganum. En það átti Lesa meira

Orðið á götunni: Hvenær er strax? – Allavega ekki strax í dag

Orðið á götunni er að sums staðar gangi brösuglega að koma saman starfhæfum meirihlutum eftir sveitarstjórnarkosningarnar á dögunum. Í Hafnarfirði, eina sveitarfélaginu þar sem Framsókn vann á, fylltist oddviti Framsóknar reyndar svo miklum eldmóði að hann myndaði ekki bara einn meirihluta heldur tvo á hálfri viku og virðist hafa viljað geta valið milli þeirra. Það Lesa meira

Halldór Jörgen skrifar: Þegar skilyrt nei verður „einfaldlega já“

Hildur Sverrisdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks, lagði nýlega fram skriflega fyrirspurn til Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra um hvort til greina kæmi að aðlaga íslenskt regluverk að ESB samhliða aðildarviðræðum. Ráðherrann svaraði á þrjá vegu: nei sem meginreglu, með vísun í samkomulag aðildarferilsins 2009–2013, og með einum afmörkuðum varnagla — að breyting yrði heimil ef…

Björn Jón skrifar: Störf sem Íslendingar „vilja ekki“

Við hliðina á Moggahöllinni í Aðalstræti var á árum áður starfrækt vínstúka sem nefndist Adlon, í löngum og mjóum skúr — „ævintýralegur staður“ eins og roskinn athafnamaður hér í bæ orðaði það við mig fyrir skemmstu. Einhverju sinni síðla á sjötta áratugnum var kunningi hans vel við skál á Adlon þegar stýrimaður af togara Lesa meira

Segir að Dagur hafi rétt fyrir sér en Diljá Mist rangt – „Þurfum við líka að taka tölurnar alvarlega“

Halldór Jörgen Olesen sem heldur úti vefnum Verðbólguvaktin – Sjálfstæð úttekt á verðlagi og stjórnsýslu á Íslandi segir það fyllilega rétt sem Dagur B. Eggertsson þingmaður Samfylkingarinnar hafi haldið fram að vaxtamunur milli Íslands og Evrusvæðisins kosti íslensk heimili 100 milljarða króna árlega, sem fari þá í hærri vaxtagreiðslur. Raunar sé Dagur að vanmeta muninn. Það Lesa meira

Vilhelm Jónsson skrifar: Þjóð sem lærði að lifa á hnjánum

Í hálfa öld hefur íslenskum almenningi verið sagt það sama. Að betri tíð sé handan við hornið. Að verðbólgan sé tímabundin. Að vextirnir verði að vera háir „í bili“. Að heimilin verði að sýna ábyrgð. Að launafólk verði að stilla kröfum sínum í hóf. Að fyrirtækin verði að sýna þolinmæði. Að þjóðin öll verði að Lesa meira

Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir: Hræðsluáróður gegn aðildarviðræðum

Mér finnst ekkert meira þreytandi en að hlusta á pólitíkusa og hagsmunaaðila sem þykjast vita betur en við hin. Pólitíkusa og hagsmunaaðila sem vilja stjórna okkur hinum af því að það er betra fyrir þá. Nú er reynt að heilaþvo okkur með allskonar hræðsluáróðri og frösum á borð við þá að Evrópusambandið sé eins og Lesa meira

Page 1 Older →