Sláandi niðurstöður: Íslendingar greiða 55 prósent hærra verð fyrir matvöru en íbúar ESB

Í umræðuskjali sem Samkeppniseftirlitið birtir í dag kemur fram að verð á matvöru á Íslandi er meðal þess hæsta í Evrópu. Þannig greiða Íslendingar að meðaltali 55 prósent meira fyrir matvöru en íbúar Evrópusambandsins. Fjallað er um þetta á vef Samkeppniseftirlitsins en þar kemur jafnframt fram að aðeins í Sviss sé matvara dýrari, eða 58 Lesa meira

Innflytjendur 19,6% íbúa landsins – Voru 7,4% fyrir 14 árum

Innflytjendur á Íslandi voru 77.226 eða 19,6% mannfjöldans þann 1. janúar 2026. Innflytjendum hefur haldið áfram að fjölga en þeir voru 18,9% landsmanna (73.795) í fyrra. Þetta kemur fram í tölum sem Hagstofa Íslands birti í morgun. „Frá árinu 2012 hefur hlutfallið farið úr 7,4% mannfjöldans upp í 19,6%. Innflytjendum af annarri kynslóð fjölgaði einnig Lesa meira

Íbúar langþreyttir á rútum á Skólavörðuholti – „Þessi staða orðin algjörlega ólíðandi“

Fjölmörg rútustopp eru í Reykjavík og flest þeirra í miðborginn, alls tíu. Eitt þeirra, númer 8, er á Skólavörðuholti við Hallgrímskirkju og hefur það stopp lengi verið þyrnir í augum íbúa, Íbúasamtaka miðborgarinnar og starfsmanna og foreldra á leikskólanum Grænuborg sem er hinu megin Eiríksgötu. Aksturstakmarkanir hópbifreiða eru í stórum hluta miðbæjarins og liggur línan Lesa meira

Sumarið er að koma: Bongó í kortunum næstu daga

Íbúar á suðvesturhorni landsins ættu að huga að því að draga fram sólarvörnina og stuttbuxurnar því þeir gætu átt von á góðu ef veðurspár næstu daga rætast. Það verður ágætisveður á vesturhelmingi landsins í dag og gæti sólin látið sjá sig víða. Á austurhelmingi landsins verður öllu þungbúnara en hiti verður víðast hvar á bilinu Lesa meira

Lögreglan lýsir eftir 12 ára dreng

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Adomas Kulikauskas, 12 ára. Síðast er vitað um ferðir hans í Árbænum. Adomas, sem er grannvaxinn, er klæddur í svartan jakka og hvíta og græna skó. Þau sem geta gefið upplýsingar um ferðir Adomas, eða vita hvar hann er að finna, eru vinsamlegast beðin um að hafa tafarlaust samband við Lesa meira

Ferðamaður lýsir dapurri reynslu: „Bjóst ekki við að þetta myndi gerast á Íslandi“

Erlendur ferðamaður varð fyrir leiðinlegri reynslu hér á landi í gær þegar brotist var inn í bílinn hans og 500 Bandaríkjadollurum stolið. Ferðamaðurinn lýsir reynslu sinni í Reddit-hópnum Visiting Iceland. Í færslunni segir maðurinn að bíllinn hafi verið á bílastæði við Gullfoss þegar einhver óprúttinn aðili braust inn í hann og hafði á brott með Lesa meira

Tveir ákærðir fyrir líkamsárás: Brutu andlitsbeinin í manni

Framhald aðalmeðferðar var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur yfir tveimur mönnum sem ákærðir eru fyrir líkamsárás sem framin var 1. apríl árið 2023. Árásin var framin utandyra í Reykjavík og eru mennirnir sakaðir um að hafa veist að manni og kýlt hann í andlit með þeim afleiðingum að hann hlaut nefbeinabrot og brot á vanga- Lesa meira

Albert Jónsson: Ísland eina ríkið til að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um viðræður – aldrei gerst áður

Það er ekkert einfalt við inngöngu í Evrópusambandið og upptöku evru. Fleiri en ein hlið er á málinu og slæmt að kjósendur skuli ekki fá nægar upplýsingar, nú þegar það er á þeirra herðum að ákveða næstu skref. Albert Jónsson, fyrrverandi sendiherra og sérfræðingur í alþjóðamálum, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar. Hér er Lesa meira

Lögreglan leitar vitna vegna innbrotsins í Reykjabúið

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar vitna í tengslum við rannsókn á innbroti í Reykjabúið á Suður-Reykjum í Mosfellsbæ aðfaranótt mánudagsins 1. júní. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu. Brotist var inn í hænsnabúið á fjórða tímanum mánudagsnótt. Í tilkynningunni segir: „Innbrotsþjófurinn, sem var svartklæddur, kom gangandi að Reykjabúinu frá Bjargsvegi, en ekki er ósennilegt að Lesa…

Hildur hvetur Íslendinga til að passa þetta þegar farið er til sólarlanda – „Það gæti bjargað lífi okkar“

„Við verðum að vera vakandi fyrir hættunum og þessi árvekni verður að beinast að öllum, líka okkur fullorðna fólkinu,“ segir Hildur Vattnes Kristjánsdóttir, teymisstjóri skyndihjálpar hjá Rauða krossinum á Íslandi, í aðsendri grein á Vísi. Í grein sinni vekur hún athygli á því að að í dag, 2. júní, sé alþjóðlegur dagur vitundarvakningar um öfgakenndan Lesa meira

Orðið á götunni: Neikvæðni og útúrsnúningar einkenna nei-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, og Sigríður Andersen, þingmaður Miðflokksins, voru gestir Kastljóss eftir að þjóðaratkvæðagreiðslan hafði verið samþykkt í þinginu með 34 atkvæðum gegn átta en 14 þingmenn Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar sátu hjá. Þorgerður Katrín var að vonum ánægð og brosandi eftir að þessi úrslit lágu fyrir með svo afgerandi hætti. Fýlan lak hins vegar …

Albert Jónsson: Trump er ekki bara tilviljun – hann er afurð raunverulegra aðstæðna

Trump passar sig á að allir sem hann velur til starfa hlýði honum. Svo var ekki á fyrra kjörtímabili hans. Bandaríkin hafa lengi verið að breytast og stórir hópar í miðríkjunum og suðrinu hafa einfaldlega orðið út undan. Það er þetta fólk sem kaus Trump. Hann hefur svo hreinlega beygt allt bandaríska stjórnkerfið undir sig. Lesa meira

Konan sem lýst var eftir er fundin

Kona sem Lögreglan á Suðurnesjum lýsti eftir snemma í kvöld, miðvikudagskvöld, er fundin. Lögreglan þakkar fyrir veitta aðstoð og hefur óskað eftir að mynd af konunni verði tekin úr birtingu. Ennfremur kemur fram í tilkynningu lögreglu að hún veiti ekki frekari upplýsingar í málið og kemur ekki fram hvort konan hafi fundist heil á húfi Lesa meira

Segir að Geirfinnur hafi verið skilinn þegar hann lét lífið – Ekkjan réðst í mikla fjársöfnun

Sigurður Björgvin, höfundur bókarinnar „Leitin að Geirfinni,“ segir að Geirfinnur Einarsson hafi verið skilinn við eiginkonu sína er hann lét lífið að kvöldi 19. nóvember árið 1974. Hann segir gögn frá Þjóðskrá staðfesta þetta. Samkvæmt bók Sigurðar lét Geirfinnur lífið í átökum á heimili sínu kvöldið sem hann hvarf en opinber skýring lögreglu er að Lesa meira

MAST kærir hótanir og ærumeiðingar gegn starfsmönnum til lögreglu

Matvælastofnun (MAST) hefur kært til lögreglu hótanir um ofbeldi gegn starfsmönnum stofnunarinnar vegna starfa þeirra í tengslum við vörslusviptingu dýra. Þetta kemur fram í tilkynningu á vefsíðu MAST. Hinn kærði er sakaður um brot á 106. gr. almennra hegningarlaga en samkvæmt henni er refsivert að beita opinbera starfsmenn ofbeldi eða hótunum um ofbeldi við störf Lesa meira

Valdimar þakkar fyrir sig eftir krefjandi daga – Fær mikið hrós frá Hafnfirðingum

Valdimar Víðisson, fráfarandi bæjarstjóri í Hafnarfirði, segir að síðustu dagar hafi verið krefjandi og margt verið sagt um hann og hans persónu. Hann þakkar fyrir sig í færslu á Facebook í morgun enda líður senn að því að hann láti af störfum sem bæjarstjóri. Margt benti til þess að Valdimar yrði áfram bæjarstjóri í Hafnarfirði Lesa meira

Allt á suðupunkti í Hafnarfirði vegna nýja meirihlutans – „Algjörlega glatað“

Fjölmargir Hafnfirðingar hafa lagt nafn sitt við undirskriftalista á vefnum Ísland.is þar sem nýjum meirihluta Sjálfstæðisflokks, Samfylkingar og Viðreisnar er mótmælt. Eins og greint var frá fyrir helgi slitu Sjálfstæðismenn meirihlutaviðræðum við Framsóknarflokkinn nokkuð óvænt, en ástæðan var sögð vera trúnaðarbrestur þar sem Framsóknarmenn voru einnig í viðræðum við aðra flokka. Í gær var svo…

Fiskikóngurinn hristir hausinn: „Tíu ár er algerlega galið“

Kristján Berg Ásgeirsson, eigandi Fiskikóngsins á Sogavegi, segir rúmlega tíu ára baráttu við borgarkerfið loksins lokið eftir að ný og mun stærri verslun fyrirtækisins opnaði um helgina. Í samtali við Morgunblaðið í dag segir Kristján að hann hafi fyrst sótt um stækkun árið 2013, en leyfi hafi ekki fengist fyrr en vorið 2025. Verslunin hafi Lesa meira

Þetta vitum við um atvikin á Hafnarbraut í dag

Lögreglan hefur í dag rannsakað alvarleg atvik í fjölbýlishúsi við Hafnarbraut á Kársnesi, Kópavogi, en atvikin hafa vakið töluverðan óhug fólks, ekki síst vegna óvissu fram eftir degi um hvað hefði átt sér stað. Gilti það meðal annars um íbúa í stigaganginum, sem ekki gátu fengið að vita hvað hefði gerst en var sagt að Lesa meira

Reynir reiður vegna umfjöllunarinnar um Tómas – „Mannorðsmorð á lækninum“

Reynir Traustason, rithöfundur og fyrrverandi ritstjóri, segir að dómur Héraðsdóms Reykjavíkur í plastbarkamálinu feli í sér mannorðmorð á Tómasi Guðbjartssyni skurðlækni. Ábyrgð á andláti sjúklingsins sem lést í kjölfar plastbarkaígræðslu liggi hjá ítalska skurðlækninum sem framkvæmdi aðgerðina og var dæmdur í málinu í Svíþjóð, og hjá sænska ríkinu. Íslenska ríkið og Tómas eigi ekki að Lesa…

Plastbarkamálið: Getur Tómas starfað áfram sem læknir?

Sigurður G. Guðjónsson, lögmaður fjölskyldu manns sem lést af völdum plastbarkaígræðslu, segir að heilbrigðisyfirvöld hljóti að velta því fyrir sér hvort Tómas Guðbjartsson geti starfað áfram sem læknir. RÚV greinir frá. Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi ríkið bótaskylt gagnvart fjölskyldu hins látna, Erítreumannsins Andemariam Beyene. Hann var sjúklingur skurðlæknisins Tómasar Guðbjartssonar á…

Ákærður fyrir kynferðisbrot í kjallara á Akureyri

Héraðssaksóknari hefur ákært mann á Norðurlandi fyrir kynferðisbrot, nánar tiltekið kynferðislega áreitni. Meint brot var framið laugardagskvöldið 1. júlí árið 2023, í kjallara ótilgreinds húsnæðis, en ákærði strauk niður eftir baki brotaþola, dró hana að sér og kyssti hana á munn og kinn og greip í rass hennar utanklæða og skömmu síðar greip hann um Lesa meira

Þuríður gagnrýnir hvatningu HÍ til fólks um að fara í ökukennaranám

Þuríður B. Ægisdóttir, formaður Ökukennarafélags Íslands, segist vera hugsi yfir hvatningu Endurmenntunar Háskóla Íslands til fólks um að skella sér í ökukennaranám. Bendir Þuríður á að síðustu ár hafi félagið haft áhyggjur af mikilli og örri fjölgun í stétt ökukennara. Í aðsendri grein á vef Vísis sem birtist í morgun bendir Þuríður á að Endurmenntun Lesa meira

Kristrún Frostadóttir: Erum í stöðugri aðlögun að regluverki ESB í gegnum EES

Það er mjög afdrifaríkt ef við segjum nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni um framhald aðildarviðræðna við ESB þar sem að óbreyttu mun líða langur tími þar til endurskoða þá ákvörðun. Það er algerlega rangt að samningsmarkmið Íslands séu óskilgreind. Þau liggja fyrir og koma í stórum dráttum fram í greinargerð með þingsályktuninni, auk þess sem utanríkismálanefnd skilgreinir Lesa meira

Eigandi Ormsson hefur áhyggjur af íslensku samfélagi: „Tregðan er farin að sjást og merkin eru skýr“

„Kannski er stærsta áskorun íslensks samfélags í dag ekki hættan á næsta hruni heldur hættan á stöðnun,“ segir Kjartan Örn Sigurðsson, eigandi Ormsson, í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag. Kjartan skrifar áhugaverðan pistil þar sem hann lýsir áhyggjum af íslensku samfélagi. „Ekki vegna þess að það sé veikt heldur vegna þess að það er Lesa meira

Pálmi Gests hissa á umræðunni: „Fíflunum hefur fjölgað með samfélagsmiðlunum“

„Það er leiðinlegt að segja það en fíflunum hefur fjölgað með samfélagsmiðlunum,“ segir Pálmi Gestsson, einn ástsælasti leikari þjóðarinnar, í athugasemd við færslu fjölmiðlamannsins Egils Helgasonar á Facebook. Í færslu sinni gerði Egill frétt Vísis – eða kannski öllu heldur viðbrögðin við fréttinni á Facebook-síðu miðilsins – að umtalsefni. Í umræddri frétt var greint frá Lesa meira

Árni Tómas er látinn

Árni Tómas Ragnarsson læknir er látinn, 76 ára að aldri. Árni fæddist í Reykjavík þann 19. janúar 1950 og lést þann 27. apríl síðastliðinn. Greint er frá andláti hans í Morgunblaðinu í dag. Foreldrar Árna voru Ragnar Tómas Árnason útvarpsþulur og verslunarmaður og Jónína Vigdís Kristjánsdóttir Schram læknaritari. Árni var Vesturbæingur og grjótharður KR-ingur og Lesa meira

Ákærð fyrir að vera fótgangandi í Héðinsfjarðargöngum

Þrítugri konu og 23 ára karlmanni hafa verið birt fyrirköll og ákæra í Lögbirtingablaðinu. Ákærandi er Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra en fólkinu er gefið að sök að hafa sunnudaginn 6. júlí 2025 verið fótgangandi á leið sinni í gegnum Héðinsfjarðargöng, frá Ólafsfirði til Siglufjarðar. Með þessu fóru þau gegn fyrirmælum umferðarmerkja sem banna umferð gangandi Lesa meira

Kristrún Frostadóttir: Valið stendur milli harðs hægri meirihluta eða skynsemi út frá miðjunni

Samfylkingin vill breytingar en ekki kollsteypur. Í stærsta prófkjöri landsins í Reykjavík í byrjun ársins varð mikil endurnýjun á listanum. Kosningarnar á morgun eru stórpólitískar. Það er tekist t.d. á um það hvort Sjálfstæðisflokkurinn á að fá að selja orkuna okkar, hvort niðurgreiða á fyrirtækjaleikskóla þar sem starfsmenn tiltekinna fyrirtækja fá forgang. Fáum við harðan Lesa meira

Segir embætti landlæknis hafa hótað að svipta hana starfsleyfi – „Tilraun til að skapa ótta“

Steinunn Erla Thorlacius, framkvæmdastjóri Intuens, segir embætti landlæknis hafa hótað að svipta hana starfsleyfi vegna starfsemi fyrirtækisins. Þetta kemur fram í aðsendri grein sem hún skrifar á Vísi í kjölfar dóms sem féll í Héraðsdómi Reykjavíkur í vikunni. Með dómnum var felld úr gildi sú ákvörðun embættis landlæknis að synja Intuens Segulómun ehf. um heimild Lesa meira

Page 1 Older →